<$BlogRSDUrl$>

fimmtudagur, júní 24, 2004

Ég er orðin frænka!

Já loksins kom fyrsta barnabarn mömmu og pabba. Hákon bróðir og Elva kærastan hans voru að eignast litla stelpu, nánar til tekið kl. 18:25. Það verður erfitt að bíða í fimm vikur með að sjá þá litlu en ég stóla bara á að pabbi verði öflugur með myndavélina sem endranær;) Get ekki beðið eftir fyrstu myndum.

Ég var btw búin að giska á að þetta yrði stelpa og að hún myndi fæðast í dag. Ég ætti kannski bara að gerast næsta völva;)

Lifið heil

This page is powered by Blogger. Isn't yours?